DAN 212
Áfangalýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geti skilið inntak ritmáls- og talmálstexta sem fjalla um nokkuð sérhæft efni sem þeir þekkja til eða hafa áhuga á. Nemendur eru þjálfaðir í að nota algeng orð og orðasambönd í ræðu og riti. Talþjálfun miðar að því að nemendur læri að orða hugsanir sínar skýrt og skilmerkilega í samtölum og frásögnum. Nemendur eru þjálfaðir í að beita mismunandi stílbrögðum við ritun texta.
Markmið
Lestur
Að nemandi:
- Geti beitt mismunandi lestraraðferðum, þ.e. leitarlestri, yfirlitslestri, hraðlestri og nákvæmnislestri
- Geti skilið inntak texta sem fjalla um nokkuð sérhæft efni, t.d. fréttir og fréttatengt efni í dagblöðum, blaða- og tímaritsgreinar og texta úr alfræðibókum
- Geti lesið einfalda vísindatexta sem ætlaðir eru almenningi
- Geti notfært sér mismunandi hjálpargögn við lestur eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum
- Geti lesið lengri bókmenntatexta
- Hafi lesið minnst tvær skáldsögur
- Geti lesið stutta norska og sænska texta byggða á orðaforða sem hann hefur í dönsku
Hlustun
Að nemandi:
- Skilji ríkisdönsku þegar talað er við hann skýrt og á eðlilegum hraða um þekkt efni, t.d. ýmis dægurmál eða reynslu í daglegu lífi
- Skilji megininntak talaðs máls sem tengist myndefni, t.d. í fréttum, kvikmyndum, samtalsþáttum og öðrum þáttum um þekkt efni
- Geti hlustað eftir tilteknum upplýsingum í þekktum textagerðum, t.d. fréttum, veðurlýsingum og leiðbeiningum
- Geti fylgst með og skilið megininntak orðræðu þegar fjallað er um nokkuð sérhæft efni sem hann þekkir vel og/eða hefur áhuga á, t.d. í fyrirlestrum, kvikmyndum, útvarpsþáttum eða sjónvarpi
- Geti hlustað eftir og skilið smáatriði í efni sem tengist efnisflokkunum
Tal
Að nemandi:
- Geti tjáð hugsun sína á dönsku skýrt og skilmerkilega við mismunandi aðstæður og með ólíkan tilgang í huga
- Geti aflað sér upplýsinga símleiðis
- Geti útskýrt og rökstutt mál sitt um efni sem fjallað hefur verið um
- Geti tekið þátt í óformlegum samræðum og beitt algengum orðum og orðasamböndum sem einkenna óformlegt talmál
- Hafi vald á hvatningar- og efasemdaorðum
- Geti notað grunnorðaforða, sem unnið hefur verið með í efnisflokkunum, á eigin forsendum í nýju samhengi
- Geti sagt það sem hann vill á þann hátt sem þjónar aðstæðum hverju sinni
- Geti talað á eðlilegum hraða innan eðlilegra tímamarka
- Geti brugðist við óvæntum aðstæðum og ólíkum viðmælendum á viðeigandi hátt
Ritun
Að nemandi:
- Geti skrifað 40-50 línur viðstöðulaust um efni sem búið er að vinna með
- Geti hagað orðum sínum og málfari í samræmi við efni textans hverju sinni
- Kunni skil á reglum um uppbyggingu texta
- Hafi vald á nokkrum textagerðum, t.d. persónulegum bréfum, hálfformlegum bréfum, kvörtunum, umsóknum, minnisatriðum, endursögnum og frásögnum
- Kunni að beita stílbrögðum, m.a. með því að nota blæbrigði í orðavali
- Geti skrifað lengri texta (t.d. 500-600 orð) með réttri stafsetningu þar sem hann beitir ferlisritun og nýtir hjálpargögn
Málfræði
Að nemandi:
- Geti beitt þolmynd sagna
- Kunni að nota óákveðin fornöfn og ábendingarfornöfn
- Kunni að nota algeng atviksorð
- Kunni skil á forsetningum í algengum orðasamböndum
- Kunni helstu samtengingar
- Kunni skil á réttri orðaröð
- Kunni að nota ákveðinn greini
- Kunni að nota det/der
