ENS 403
Undanfari: ENS 303
Markmið
Að nemendur
- auki almennan orðaforða sinn og þekkingu á orðaforða og hugtökum bókmenntafræði
- geti lesið og skilið fjölbreytilegt lesefni
- auki færni sína við túlkun bókmenntaverka
- geti tjáð sig á skipulegan, rökrænan og samfelldan hátt í rituðu og töluðu máli
- geti hlustað á og skilið raunefni, t.d. fréttaþætti og ýmiss konar fræðsluefni
- öðlist dýpri skilning á uppbyggingu málsins
- kynnist menningu enskumælandi landa
Námslýsing
Áhersla lögð á aukna fjölbreytni í lestrarefni, t.d. bókmenntaverk og alþýðlegar fræðigreinar úr tímaritum og dagblöðum. Áhersla á aukna færni í bókmenntafræðilegri greiningu. Sérstök áhersla á skipulega framsetningu hugmynda í rituðu sem og töluðu máli. Kynning á menningu enskumælandi landa þar sem notaðir eru ýmsir lestextar auk hlustunar- og myndbandaefni Aukin áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, m.a. við öflun upplýsinga á bókasöfnum t.d. um þær fræðigreinar sem nám þeirra byggist á, einnig á Netinu og í margmiðlunarefni.
