FÉL 103
Undanfari: Enginn
Markmið
Að nemendur
-
þekki til þróunar félagsvísinda og geti útskýrt helstu vinnu- og rannsóknaraðferðir félagsfræðinnar sem fræðigreinar
-
þekki og geti beitt helstu grundvallarhugtökum félagsfræðinnar
-
þekki til helstu trúarbragða heims
-
þekki til orsaka kynþáttafordóma og annarrar mismununar
-
geti borið saman fjölskyldur og fjölskyldugerðir, fjalli um hlutverk þeirra fyrr og nú og þekki til helstu réttinda og skyldna sem fylgja mismunandi sambúðarformi
-
geri sér grein fyrir atvinnumarkaði, atvinnuskiptingu og uppbyggingu íslenska stjórnkerfisins
Námslýsing
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsfræðinnar. Fjallað er um samfélagið í ljósi þeirra áhrifa sem það hefur á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á umhverfi sínu svo þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegum umræðum og mynda sér skoðanir á meðvitaðan og gagnrýninn hátt. Helstu viðfangsefnin eru kynning á félagsfræðinni sem fræðigrein, rannsóknaraðferðum og grundvallarhugtökum hennar. Einstaklingurinn í samfélaginu, félagsmótun, félagslegt taumhald, staða og kynhlutverk. Mismunandi samfélög, fordómar, menning, helstu trúarbrögð, fjölskyldan, atvinnulíf og stjórnmál. Verkefnavinna skiptist í einstaklings- og hópverkefni.
Athugasemd
Kjarni á öllum brautum
