ÍSL 102
Undanfari: Enginn
Áfangalýsing:
Könnuð verði staða nemenda í lestri, lesskilningi og stafsetningu og reynt að finna úrræði fyrir þá sem verst eru staddir.
Bókmenntir: Lesnir verða fjölbreyttir bókmenntatextar og unnið með þá. Farið verður í nokkur grunnhugtök bókmenntafræðinnar og þeim beitt í umfjöllun um bókmenntir. Textar úr bókinni Spegill, spegill lesnir ásamt Mýrinni og kjörbók.
Stafsetning: Nemendur leysa ýmis stafsetningarverkefni auk þess sem stafsetning tengist ýmsum öðrum þáttum áfangans. Nemendur munu fá æfingu í notkun hjálpargagna við réttritun.
Ritun: Nemendur fá fjölbreytta þjálfun í ritun og vinna ýmis verkefni í því sambandi. Á önninni skrifa nemendur a.m.k. eina ritgerð um almennt efni og kjörbókarritgerð.
Tjáning: Farið yfir grunnatriði framsagnar og flutnings og þessi atriði æfð á eigin textum nemenda og annarra.
Markmið:
Að nemandi:
- Þjálfist í að auka leshraða sinn og bæta lesskilning.
- Lesi bókmenntatexta og ýmsa aðra texta.
- Fái tækifæri til að velja texta við hæfi í samræmi við áhuga sinn.
- Geti beitt hugtökum bókmenntafræði í umfjöllun um bókmenntir.
- Öðlist sjálfstraust til að tala og/eða lesa fyrir framan aðra.
- Kannist við séreinkenni ritmáls og talmáls.
- Skrifi margs konar ritsmíðar í skrefum þ.e. með ferliritun.
- Temji sér notkun hjálpargagna við réttritun, þ.m.t. orðabækur og leiðréttingarforrit.
- Fái tækifæri til að bæta kunnáttu sína í réttritun og greinamerkjasetningu
Námsmat:
Lokapróf 50%, námseinkunn 50%
