ÍSL 403
Undanfari: ÍSL 303
Markmið
Að nemandi:
Markmið
Að nemandi:
- þekki strauma og stefnur í íslenskum bókmenntum frá 1550-1920
- átti sig á einkennum hverrar stefnu fyrir sig
- lesi ýmsa texta frá tímabilinu og tengi þá við stefnurnar
- þekki helstu skáld tímabilsins og verk þeirra
- geti lesið fræðigreinar um íslenskar bókmenntir
- geti notað ýmis bókmenntahugtök við greiningar á sögum og ljóðum
- rifji upp helstu hugtök bragfærðinnar
Námslýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á tengsl máls, bókmennta og þjóðfélags frá siðaskiptum fram yfir aldamótin 1900. Vakin skal athygli á því hvernig málfar íslenskra bókmennta og bókmenntirnar sjálfar spegla þjóðfélagsaðstæður og menningarlíf, tíðaranda, strauma og stefnur á tímum siðaskipta, lærdómsaldar, upplýsingar, rómantíkur og raunsæis. Nemendur kynnast hugmyndum manna um íslenska tungu og viðleitni manna til málhreinsunar. Nemendur fá einnig tækifæri til að tjá sig í ræðu og riti um einstök verk og höfunda þeirra.
