ÍSL 503
Undanfari: Íslenska 403
Markmið
Að nemendur:
Markmið
Að nemendur:
- öðlist yfirsýn yfir bókmenntasögu 20. aldar
- átti sig á áhrifum erlendra menningarstrauma á íslenskar bókmenntir 20. aldar´
- þekki helstu hugtök sem tengjast bókmenntastefnum 20. aldar
- geri sér grein fyrir samspili bókmennta og þjóðfélagsbreytinga og hlutverki bókmennta í samfélaginu
- þekki nokkra helstu höfunda og verk tímabilsins
- þjálfist í lestri margs konar bókmenntaforma, leikrita, ljóða, smásagna og skáldsagna og túlkun þeirra
- geti greint formleg einkenni bókmenntaverka (bragarhætti ljóða, myndmál og stílbrögð, málsfarseinkenni)
- æfist í að gera grein fyrir viðfangsefnum sínum í ræðu og riti
Námslýsing:
Bókmenntir frá 1900 - 2000. Í áfanganum kynnast nemendur íslenskri bókmenntasögu 20. aldar í samhengi við strauma og stefnur í þjóðfélags- og menningarmálum bæði hérlendis og erlendis á sama tímaskeiði. Nemendur kynnast helstu höfundum á þessum tíma, lesa verk eftir þá, glöggva sig á inntaki bókmenntaverkanna og reyna að átta sig á erindi þeirra við eigin samtíma og nútímann. Nemendur gera grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega.
