LAN 103
Almenn landafræði
Undanfari: Enginn
Markmið
Að nemendur:
-
Þekki tvískiptingu fræðigreinarinnar, læri að beita vinnuaðferðum landfræðinga og kynnist aðferðum þeirra við upplýsingaöflun.
-
Þjálfist í að lesa úr og notfæra sér ólík kort, kynnist undirstöðuatriðum í fjarkönnun, þjálfist í að reikna út mælikvarða, kynnist og noti bauganet jarðar og þekki helstu drætti í sögu kortagerðar.
-
Geri sér góða grein fyrir landnotkun og skipulagi, þekki hvernig landnýting hefur breyst og þekki helstu gerðir og hlutverk skipulags og reglugerðir er lúta að skipulagi og landnýtingu bæði á heimsvísu og í heimabyggð.
-
Þekki dreifingu, vöxt og samsetningu fólksfjölda, skilgreini og noti lýðfræðileg hugtök; t.d. aldursskiptingu, fæðingartíðni, lífslíkur, búsetumynstur og lesi og túlki algengustu gerðir af fólksfjöldatölum og spám.
-
Kynni sér fólksflutninga í sögulegu samhengi allt til líðandi stundar.
Námslýsing
Í áfanganum er fjallað um landafræði sem fræðigrein, notagildi hennar og tengsl við aðrar fræðigreinar. Lögð er áhersla á kortalestur og kortagerð, fjallað um landnýtingu og breytingar á notkun lands og afleiðingar hennar. Gerð er grein fyrir undirstöðum efnahagslífs og nýtingu auðlinda. Kynnt eru grunnhugtök lýðfræðinnar, vandamál er tengjast fólksfjölgun og fólksflutningum. Megináhersla er lögð á að nemenndur vinni nokkur sérhæfð verkefni sem krefjist upplýsingaöflunar úr fjölbreyttum heimildum. Námsmat felst í verkefnaskilum, hlutaprófum og lokaprófi.
Athugasemd:
Kjarni á félagsfræðibraut
