SAG 103
Fram um 1800
Enginn undanfari. Í kjarna
Áfangamarkmið:
- Að nemendur öðlist skilning á mismunandi skeiðum sögunnar, arfi hennar og áhrifum á líf okkar og störf.
- Að nemendur þekki þráðinn sem liggur á milli fortíðar og nútíðar, s.s. uppruna tímatals, ritmáls, borgarsamfélaga, lýðræðisfyrirkomulags, menntunar og menningarstrauma, breytinga á stjórnskipulagi og tilurð og þróun þjóðríkja.
- Að nemendur átti sig á hvernig hugmyndir fluttust á milli menningarsamfélaga og höfðu áhrif á þróun þeirra.
- Að nemendur tengi sögu Íslands við sögu umheimsins, átti sig á hinu sérstæða og hinu hliðstæða.
Áfangalýsing:
Yfirlit um sögu mannkyns frá upphafi til um 1800, með áherslu á nokkur helstu atriði sem áhrif hafa á samtímann. Þótt ekki sé um samfellda yfirferð að ræða er lögð áhersla á að valdir þættir skapi ákveðna heild, svo hægt verða að draga fram heildstæða mynd af sögulegri þróun í Evrópu. Lögð er áhersla á tengingu við MiðAusturlönd í fornöld og á miðöldum og tengsl þess menningarheims við hinn evrópska. Samhliða verður farið í helstu þætti Íslandssögu frá landnámi til loka 18. aldar og tengsl hennar við sögu Evrópu, bæði það hliðstæða og það sérstæða.
Heimildarýni af ýmsu tagi verður lögð til grundvallar.
