SJÚ 103
Undanfari LOL 103 og HBF 103
Markmið
Að nemendur:
- geti gert grein fyrir nokkrum grundvallarhugtökum í meinafræði og tengsl þeirra við sjúkdóma í mönnum
- geti lýst hvernig hægt er að minnka líkur á frumulöskun af völdum umhverfisþátta
- þekki hlutverk helstu samvægisferla í heilbrigði mannslíkamans
- læri um þróun og sameiginleg einkenni helstu krabbameina og tengsl þeirra við umhverfis-og erfðaþætti
- geti gert grein fyrir meingerð, einkennum og orsökum algengustu sjúkdóma í þekjukerfi, stoðkerfi og taugakerfi.
Námslýsing
Í áfanganum er fjallað um grundvallarhugtök í meinafræði og þróun sjúklegra breytinga í líkamsvefjum. Það er fjallað nokkuð almennt um sýkingar, æxlisvöxt og umhverfislöskun og nokkuð ítarlega um sjúkdóma í stoðkerfi, taugakerfi og húð.
