STÆ 102
Jöfnur og hlutföll
Undanfari: Enginn
Markmið
Að nemendur:
- geti sett upp og leyst verkefni sem fela í sér jöfnur og formúlur
- geti beitt fjölbreyttum vinnubrögðum við lausn stærðfræðilegra verkefna
- nái tökum á hlutfallshugtakinu
- öðlist færni í röksemdafærslu
Námslýsing
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefnin jöfnur, hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum. Helstu efnisatriði eru: Lausnir jafna, óuppsettar jöfnur. Lausnir verkefna og þrauta. Reikniformúlur. Talnahlutföll, skiptireikningur, prósentur, vextir. Rétthyrnt hnitakerfi í sléttum fleti og jafna beinnar línu.
Athugasemd
Kjarni á öllum brautum (eða STÆ 103)
