STÆ 122

Rúmfræði

 

Undanfari: STÆ 102

 

Markmið

Að nemendur:

  • geti beitt fjölbreyttum vinnubrögðum við lausn stærðfræðilegra verkefna öðlist færni í röksemdafærslu
  • þekki helstu reglur um einslögun, hlutföll og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi

Námslýsing

Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefnin eru á sviði rúmfræði en jafnframt er farið í Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum. Helstu efnisatriði eru: Frumsendur og óskilgreind hugtök. Frumhugtök rúmfræðinnar. Línur og horn í þríhyrningi og hornasumma þríhyrnings. Einshyrndir þríhyrningar. Pýþagórasarregla. Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi. Flatarmál og rúmmál. Umritaður og innritaður hringur þríhyrnings.

 

Athugasemd

Kjarni á öllum brautum (eða STÆ103)


Atburðir
« Febrúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Næstu atburðir

Vefumsjón