STÆ 303
STÆ 303 Undanfari STÆ 203
Markmið
Að nemendur
- kunni undirstöðuatriði yrðingarökfræði
- þekki jöfnur hrings og sporbaugs
- hafi öðlast góða þjálfun í hornafræði þríhyrninga
- kunni skil á lotubundnum föllum
- kunni skil á vigurreikningi í sléttum fleti
- hafi unnið að fjölbreyttum stærðfræðilegum verkefnum
Námslýsing
Helstu efnisþættir eru vigurreikningur, hornaföll, keilusnið og hornafallajöfnur. Efni áfangans er vigrar og hornaföll, tengsl algebru og rúmfræði í hnitakerfi og kynning á talningarfræði. Enn fremur er fjallað um sögulega þróun hornafræði og hagnýtingu þekkingar á hornaföllum, m.a. við landmælingar. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist flatarmyndafræði í hnitakerfi og læri að sanna helstu reglur þar að lútandi og beita þeim.
Athugasemd
Áfanginn er skylduáfangi á náttúrufræðibraut.
