STÆ 313
Undanfari: STÆ 263 / 303
Markmið
Að nemendur:
- kunni góð skil á undirstöðuhugtökum úr lýsandi tölfræði, nánar tiltekið: geti gert tíðnitöflu og myndrit úr gefnu talnasafni og fundið hlutfallsleg tíðni ákveðinna gilda í talnasafninu
- þekki skilgreiningar á eftirfarandi hugtökum fyrir gagnasöfn: tíðasta gildi, meðaltal, vegið meðaltal, miðgildi, seilingu, meðalfrávik, staðalfrávik og hlutfallslegt frávik og geti reiknað út þessi gildi fyrir gefin gagnasöfn
- geti túlkað tölfræðilegar upplýsingar
- þekki hugtökin útkoma, atburður,útkomurúm, samantektir og umraðanir í líkindafræði og geti reiknað út líkindi á gefnum atburði í einföldu líkindarúmi
- viti regluna um líkindi óháðra atburða, samatburða og sniðatburða og skilyrt líkindi
- öðlist vitneskju um tvíliðadreifingu og tengsl hennar við Pascal - þríhyrninginn
- þekki normlega dreifingu og geti framkvæmt helstu útreikninga fyrir hana
- kannist við fylgnihugtakið
Námslýsing
Fjallað er um töluleg gögn, tíðnitöflur, myndræna framsetningu á þeim með myndritum, einkennistölur fyrir gagnasöfn, mælingar á miðsækni, dreifingu, undirstöðuatriði líkindareiknings ásamt frumatriði talningar- og fléttufræði, normaldreifingu og fylgni. Nemendur vinna verkefni bæði einir og í samvinnu við aðra nemendur með aðstoð reiknitækja og töflureiknis (Excel).
Athugasemd
Kjörsvið á náttúru- og félagsfræðibraut.
