ÞÝS 103
Áfangamarkmið
Hlustun
Að nemandi:
- geti skilið einföld fyrirmæli kennarans á þýsku í kennslustofunni,
- geti skilið talað mál með einföldum orðaforða þegar talað er við hann hægt og skýrt um efni sem varðar daglegt líf hans og tekið hefur verið fyrir í áfanganum
- geti greint stök lykilorð eða afmarkaðar upplýsingar í texta sem talaður er á eðlilegum hraða um efni sem hann þekkir vel og er tekinn upp á segulband við aðstæður þar sem hljóð í umhverfi torvelda ekki skilning.
Lestur
Að nemandi:
- geti lesið og skilið stutta texta með einföldum orðaforða,
- geti áttað sig á meginefni í lengri texta sem skrifaður er á léttu máli þótt hann skilji ekki hvert einasta orð
Tal
Að nemandi:
- hafi náð nokkru öryggi í réttum framburði, sérstaklega varðandi þau atriði þar sem ónákvæmur framburður getur auðveldlega valdið misskilningi, svo sem framburður á "sch", "z", "s", "ß", á "ch", á "u" og "ü", "ä", "au", "ei", "ie", "eu" og "äu",
- hafi áttað sig á áherslum algengustu orða og geti líkt eftir hrynjandi setninga/setningahluta,
- hafi tileinkað sér algengustu kveðjur og kurteisisvenjur á þýsku sem tilheyra daglegum samskiptum,
- geti brugðist við einföldum fyrirmælum kennarans á þýsku og beðið um einföld atriði í kennslustofunni á þýsku,
- geti óhræddur tjáð sig munnlega með einföldum setningum um afmarkað efni sem hann þekkir vel.
Ritun
Að nemandi:
- geti tjáð sig skriflega með réttri stafsetningu í einföldum aðalsetningum á sjálfstæðan hátt um afmarkað efni sem hann hefur aflað sér orðaforða um,
- geti svarað spurningum og myndað spurningar,
- geti beitt reglum rétt í málfræðiæfingum,
- geti skrifað stutt persónulegt bréf eða póstkort á þýsku.
Áfangalýsing
Í upphafi er unnið með einfalda texta sem tengjast reynsluheimi nemendanna. Lögð er megináhersla á þjálfun framburðar, uppbyggingu og notkun orðaforða um nánasta umhverfi, munnlega og skriflega tjáningu, hlustun og grunnatriði málfræðinnar sem nauðsynleg eru til að mynda einfaldar aðalsetningar og spurningar.
