ÞÝS 303
Undanfari: ÞÝS 203.
Áfangalýsing
Orðaforði, sem komið hefur fram í undanförum, er lítillega rifjaður upp. Áfram er áhersla á samtalsæfingar í para- og/eða hópvinnu og nemendur nú látnir segja skoðanir sínar á málefnum. Lögð er áhersla á að nemendur fái innsýn inn í aðstæður ungs fólks í þýskumælandi löndum hvað snertir nám og atvinnuhætti. Í umfjöllun um "Landeskunde" er fjallað um skiptingu og sameiningu Þýskalands en þetta eru atriði sem eru forsenda skilnings á núverandi þjóðfélagsaðstæðum.
Markmið
Hlustun
Að nemandi:
- geti skilið öll almenn fyrirmæli kennara á þýsku í kennslustofunni,
- geti skilið daglegt talmál þegar talað er við hann hægt og skýrt með almennum algengum
- orðaforða um málefni er varða daglegt líf, umhverfi og líðan,
- geti greint megininntak orðræðu um efni sem verið hefur til umfjöllunar þegar talað er á
- eðlilegum hraða við aðstæður þar sem hljóð í umhverfi torvelda ekki skilning,
Lestur
Að nemandi:
- hafi aukið þjálfun sína í að bæta nýjum orðaforða við þann sem fyrir er,
- geti lesið til skilnings létta texta með almennum orðaforða er tengjast daglegu lífi í starfi og
- leik,
- geti lesið og skilið meginefni lengri texta og stuttra ljóða með almennum orðaforða,
- geti dregið út lykilorð til glósunar,
- geti nýtt sér orðabækur við upplýsingaöflun,
Tal
Að nemandi:
- hafi á valdi sínu að nota eingöngu þýsku í öllum almennum samskiptum sínum við kennara í
- kennslustofunni nema þegar flókinna útskýringa er þörf,
- geti tjáð sig munnlega í einföldum setningum, óhræddur og af nokkru öryggi, um afmarkað
- efni sem hefur verið til umfjöllunar,
- geti tjáð sig um myndir eða stuttar myndasögur,
- geti tjáð persónulega afstöðu til málefna sem tekin hafa verið fyrir í áfanganum, sagt skoðanir
- sínar á þeim og beitt af nokkru öryggi orðasamböndum sem nauðsynleg eru til almennra
- skoðanaskipta,
- geti beitt málnotkunarreglum nokkuð rétt í munnlegri orðræðu,
Ritun
Að nemandi:
- geti tjáð sig skriflega með réttri stafsetningu í aðal- og aukasetningum um efni sem verið hefur
- til umfjöllunar,
- geti skrifað persónuleg sendibréf á viðeigandi hátt (ávarp, kveðjur) um efni sem tengist honum
- sjálfum og atburðum í daglegu lífi, persónulýsingum, fyrirætlunum og væntingum,
- geti skrifað stuttan útdrátt úr lesinni sögu,
- geti tjáð sig skriflega um myndir eða stuttar myndasögur,
- geti beitt málnotkunarreglum rétt í æfingum af mismunandi gerð.
