ÞÝS 403
Undanfari: ÞÝS 303
Áfangamarkmið
Hlustun
-
geti skilið í meginatriðum daglegt talmál þegar talað er við hann hægt og skýrt með almennum algengum orðaforða um málefni er varða daglegt líf í víðum skilningi,
-
geti greint megininntak orðræðu um efni sem verið hefur til umfjöllunar þegar talað er á eðlilegum hraða við aðstæður þar sem hljóð í umhverfi torvelda ekki skilning,
-
geti greint lykilorð eða megininnihald frétta í útvarpi/sjónvarpi, allt eftir þyngd efnisins hverju sinni,
Lestur
-
hafi aukið þjálfun sína í að bæta nýjum orðaforða við þann sem fyrir er,
-
geti skilið meginefni óstytts bókmenntatexta á almennu aðgengilegu máli þó að viðkomandi skilji ekki hvert orð,
-
geti skilið megininntak nytjatexta á almennu aðgengilegu máli er fjalla um efni sem verið
-
hefur að einhverju leyti til umfjöllunar í kennslustund,
-
geti leitað eftir orðskýringum á völdum orðum/orðasamböndum í þýskþýskri orðabók með aðstoð kennara eða þýskíslenskrar orðabókar,
Tal
-
hafi á valdi sínu að nota þýsku í almennum samskiptum sínum við kennara í kennslustofunni nema þegar flókinna útskýringa er þörf,
-
geti tjáð sig munnlega í aðal og aukasetningum, óhræddur og af nokkru öryggi, um afmarkað efni sem verið hefur til umfjöllunar,
-
geti tjáð sig af öryggi um myndir og stuttar myndasögur,
-
geti gert grein fyrir efni sem sett er fram á myndrænan hátt, s.s. í línuritum/súluritum með einföldum orðum/orðasamböndum,
-
geti tjáð persónulega afstöðu til málefna sem tekin hafa verið fyrir í áfanganum, sagt skoðanir sínar á þeim og beitt af öryggi orðasamböndum sem nauðsynleg eru til almennra skoðanaskipta,
-
geti beitt málnotkunarreglum nokkuð rétt í munnlegri orðræðu,
Ritun
-
hafi öðlast meiri leikni í að tjá sig skriflega í aðal og aukasetninum um almennt efni sem verið hefur til umfjöllunar,
-
geti greint í stuttri ritgerð frá meginefni lesins bókmenntatexta,
-
geti beitt málnotkunarreglum rétt í æfingum af mismunandi gerð.
Áfangalýsing
Orðaforði og málnotkunarreglur, sem komið hafa fram í undanförum, eru lítillega rifjaðar upp og þjálfaðar eftir því sem þurfa þykir. Jöfn áhersla er nú á munnlega tjáningu og skriflega færni með almennum orðaforða um daglegt líf í víðum skilningi. Aukin áhersla er lögð á umfjöllun um valin málefni líðandi stundar sem eru í fréttum erlendis og/eða hér á landi. Fjallað er um sambandslönd Þýskalands og valið efni er tengist þeim sérstaklega.
