Tilkynningar

9 mar 2010

Háskólakynning

Háskólarnir verða með kynningu í skólanum miðvikudaginn 10. mars milli kl. 11:00 og 13:30. Nemendur eru hvattir til að kynna sér námsframboð skólanna. Þeir sem eru í tíma kl. 11:30 munu fara á sal með kennurum sínum til að líta á framboðið.
1 mar 2010

Sólrisuhátíð 2010

Hin árlega Sólrisuhátíð stendur nú yfir. Henni lýkur laugardaginn 6. mars en þá verður sólrisuball með hljómsveitinni Skímó á skemmtistaðnum Vaxon í Bolungarvík.  Miðaverð er 2.500 kr. fyrir félaga í NMÍ en  2.800 kr. fyrir aðra. Nánari upplýsingar um dagskrá Sólrisuhátíðar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar solrisa.is
13 nóv 2009

Ný heimasíða MÍ

Menntaskólinn á Ísafirði hefur nú í dag tekið í notkun nýja heimasíðu og nýtt vefumsjónarkerfi! Vefumsjónarkerfið heitir Snerpill og Ágúst Atlason hjá Snerpu á heiðurinn að útliti og uppsetningu síðunnar. Við vonum að notendur síðunnar eigi eftir að njóta hins nýja útlits.