Áhugavert viðtal við Rán Kjartansdóttur

12 jan 2022

Áhugavert viðtal við Rán Kjartansdóttur

Úr viðtali Fréttablaðsins við Rán Kjartansdóttur
Úr viðtali Fréttablaðsins við Rán Kjartansdóttur

Það er gaman þegar tækifæri gefst til að fylgjast með því hvað fyrrum nemendur skólans eru að fást við. Rán Kjartansdóttir sem lauk stúdentsprófi frá MÍ í desember s.l. er í viðtali í sérblaði Fréttablaðsins um skóla og námskeið sem kom út í dag. Rán náði mjög góðum árangri á stúdentsprófi en hún hlaut meðaleinkunnina 9,37. Einstaklega áhugavert viðtal við Rán þar sem hún ræðir meðal annars styttingu á námi til stúdentsprófs og segir frá upphlut og peysufötum sem hún saumaði á þjóðbúninga saumanámskeiði í MÍ. Við óskum Rán góðs gengis í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

Hér er hlekkur á blaðið og viðtalið er á blaðsíðu 14.

Til baka