ÁHTÆ1MR04 - Áhalda og tækjafræði (múraraiðn)

Áfangalýsing:

Farið yfir heiti, notkunarsvið, meðhöndlun, umhirðu, viðhald og öryggisatriði áhalda, tækja og véla sem notuð eru í múraraiðn. Enn fremur er fjallað um notkun, umhirðu, viðhald og öryggisatriði véla, verkfæra og áhalda á byggingavinnustöðum t.d. krana, lyftubúnað, vinnupalla o.fl.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • öllum helstu handverkfærum í múrsmíði.
  • öllum helstu sprautuvélum í múrsmíði.
  • öllum helstu gerðum vélsaga í múrsmíði.
  • öllum helstu handverkfærum við niðurlögn steinsteypu.
  • öllum helstu véla‐ og rafmagnsverkfærum við steypuvinnu.
  • öllum helstu handverkfærum við járnabindingar.
  • öllum helstu véla‐ og rafmagnsverkfærum við járnabindingar.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota mismunandi flísaskera.
  • nota mismunandi flísasagir.
  • nota mismunandi blöð í flísa‐ og steinsagir.
  • nota helstu stein‐ og höggborvélar.
  • nota mismunandi hrærivélar.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við múrhúðun.
  • fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við flísalagnir.
  • fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við steinlagnir.
  • fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við einangrun.
  • fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við steypuvinnu.
  • gæta fyllsta öryggis við meðferð ofangreindra tækja.
  • sinna þrifum og umhirðu ofangreindra tækja.