DANS1SK05 - Danska - grunnáfangi á 1. þrepi

Áfangalýsing:

Í þessum áfanga skal fyrst og fremst leitast við að auka sjálfstraust nemandans í dönsku. Farið er í grunnatriði danskrar málfræði og alla færniþætti málsins, þ.e. lesskilning, ritun, hlustun og tjáningu. Unnið með létta texta til að auka lesskilning, orðaforða og orðanotkun. Hlustun er þjálfuð. kynnast hvernig danskan nýtist á hinu norræna menningarsvæði. Nemendur fá þjálfun í að nota hjálpargögn og kennsluforrit í námi sínu. 

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einföldu rit- og talmáli
  • grunnatriðum danskrar málfræði
  • helstu málhljóðum í dönsku
  • skyldleika norrænna tungumála
  • notkun orðabóka og hjálpargagna á netinu 

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá sig á einföldu máli 
  • skilja talað og ritað mál 
  • mynda einfaldar setningar á dönsku 
  • miðla þekkingu sinni á fjölbreyttan hátt 

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tala um sig, fjölskyldu sína og nánasta umhverfi á dönsku 
  • lesa uppskriftir og einfaldar leiðbeiningar á dönsku 
  • spyrja og vísa til vegar 

 

Áfangakeðja í tungumálum