DANS2BF05 - Danska - danskt mál og samfélag

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi þjálfist í að tjá sig á vandaðri dönsku og auki skilning sinn á töluðu og rituðu máli.
Að nemendur kynnist menningu og sögu Danmerkur betur og auki þannig víðsýni, skilning og virðingu fyrir ólíkri menningu og verði betur meðvituð um þau landssvæði þar sem danska er töluð. Að nemendur sjái að tungumálakunnátta sé lykill að upplýsingum sem gefi aðgengi að faglegu efni á erlendum tungumálum. Að nemendur kynnist norðurlandasamstarfi, hvernig danskan nýtist á hinu norræna menningarsvæði og tækifærum sem felast í norrænni samvinnu. 

Forkröfur: DANS1SK05 eða hæfniseinkunn B úr grunnskóla. 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • dönsku samfélagi og menningu 
  • framburði á dönsku 
  • orðaforða í daglegu máli  
  • setningargerð í ritmáli 
  • Norðurlandasamstarfi 

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • bera fram dönsk málhljóð og mynda tækar setningar í töluðu og rituðu máli 
  • lesa fjölbreytta texta á dönsku 
  • taka þátt í samtölum um daglegt líf 
  • setja fram þekkingu sína á fjölbreyttan hátt 
  • að vinna í hóp 


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nálgast upplýsingar á dönsku og öðrum norrænum málum og nýta sér þær í áframhaldandi námi 
  • tala um málefni líðandi stundar á dönsku 
  • miðla þekkingu sinni um danska menningu og samfélag á fjölbreyttan hátt 

 

Áfangakeðja í tungumálum