ENSK1TL03 - Enska fyrir starfsbraut

Áfangalýsing:

Helstu atriði í grunn-ensku, þ.m.t. einföld málfræði, grunn-orðaforði og einfaldur málskilningur tekin fyrir í verkefnum og virkni sem hentar nemendum með skerta færni. Skoðaðar verða enskar bókmenntir og kvikmyndir auk annarra þátta sem stutt gætu við enskt, talað mál. Verkefnavinnu er haldið í lágmarki og miðað við að hver fái verkefni við sitt hæfi.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Einföldum orðaforða miðað við byrjanda í enskunámi
  • Tengslum orða við hluti og hugmyndir
  • Einfaldri enskri málfræði
  • Einföldum, sértækum orðaforða t.d. í kvikmyndum og hljóðvarpi

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita einföldum orðaforða í námi og daglegri umræðu
  • Ræða og rita um ólíka, einfalda hluti
  • Persónubeygja einfaldar sagnir

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tengja hluti við ensk orð
  • Geta gert sig skiljanlegan á einfaldri ensku
  • Tala við jafningja sína á grunn-ensku