GRTE1FÚ05 - Grunnteikning 2

Áfangalýsing:

Í áfanganum læra nemendur grunnatriði í flatarteikningu og rúmteikningu. Í flatarteikningu læra nemendur um að skipta línum og hornum með bogaskurði, um þríhyrninga og flatarmál með teikningu margvíslegra flatarmynda. Nemendur læra þekkja helstu form hluta eins og strendinga, strýtur, sívalninga og keilur. Í rúmteikningu læra nemendur teikna fallmyndir út frá mismunandi sjónarhornum, um sniðskorna hluti og fletja út yfirborð.

Forkröfur: GRTE1FF05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnatriðum í flatar- og rúmteikningu.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skipta línum með bogaskurðiog gerð flatar og útflatningsmynda.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • teikna bæði tví- og þrívíðar myndir til að tjá sig.