Farið yfir helstu vinnubrögð og verkfæri í einfaldri smíði og handavinnu. Handverkfæri kynnt og notkun þeirra útskýrð og þjálfuð í einföldum verkefnum.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu handverkfærum í trésmíði
- Meðferð verkfæra í trésmíði
- Varúð og vinnureglur í trésmíði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Beita handverkfærum við smíðar
- Velja rétt verkfæri til viðk. verks
- Þekkja takmörk sín miðað við helstu vinnureglur og hegðun á verkstæði og við notkun beittra verkfæra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Smíða einfalda smíðahluti
- Þekkja verkfæri og virkni þeirra
- Þekkja þá hættu sem fylgir beitingu handverkfæra við smíðar.