HEIM2IH05 - Inngangur að heimspeki

Áfangalýsing:

Í þessum inngangsáfanga í heimspeki er lögð verður áhersla á almenna kynningu heimspekinnar sem fræðigreinar og nemendur þjálfaðir í að beita aðferðum hennar í daglegu líf og áhersla lögð á mikilvægi gagnrýninnar hugsunar. Teknir verða fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum. Kynnt verða þau vandamál sem heimspekingar hafa einkum glímt við í gegnum tíðina og hugað að þeim lausnum sem hvað mesta athygli hafa vakið. Athugað verður hvernig heimspekileg rökræða geti hjálpað nútímamanninum að móta gildi og viðmið tilveru sinnar. Nemendur vinna fjölmörg hóp- og einstaklingsverkefni.

Forkröfur: FÉLV1IF05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • völdum heimspekingum og heimspekikenningum frá forn Grikklandi til okkar tíma
  • mikilvægi gagnrýnnar hugsunar
  • undirstöðuatriðum heimspekilegrar hugsunar
  • lestri heimspekitexta
  • heimspekilegum samræðum
  • helstu viðfangsefnum heimspekinnar
  • helstu undirgreinum heimspekinnar, svo sem frumspeki, þekkingarfræði og siðfræði

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa heimspekitexta
  • endursegja og skýra heimspekilega texta
  • beita gagnrýnni hugsun
  • meta eigin rök og annarra
  • tjá sig heimspekilega og hlusta á aðra
  • tengja heimspeki við eigin reynslu og veruleika
  • geti með skýrum og greinargóðum hætti gert sjálfum sér og öðrum grein fyrir hugsunum sínum og hugmyndum, bæði munnlega og skriflega.


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta miðlað torskildum fróðleik á skýran hátt
  • geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
  • geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
  • geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
  • skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í
  • beita heimspekilegum hugmyndum til þess að leysa úr siðferðislegum vandamálum
  • geti tekið gagnrýna afstöðu til málefna líðandi stundar og fært rök fyrir afstöðu sinni

 

Áfangakeðja í félagsgreinum