HEIM2IL05 - Heimspeki illskunnar

Lýsing

Áfangalýsing:

Í áfanganum verður fjallað um illskuna í víðu ljósi. Fjallað verður um hvað illska er og hvers vegna fólk stundar voðaverk eins og stríð, hryðjuverk, morð, hatursglæpi og fleira. Námsefnið mun vera tengt við söguna sem og líðandi stund. Nemendur munu fá þjálfun í að greina illsku í sögunni sem og í nútímanum. Einnig munu nemendur fá tækifæri til þess að koma með hugmyndir um hvernig megi minnka böl heimsins.

Forkröfur: FÉLV1IF05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • kenningum um illsku frá fornöld og til okkar daga
  • nokkrum heimspekingum sem fjallað hafa um illskuna, til dæmis Hannah Arendt, Friedrich Nietzsche og Platon
  • nokkrum mismunandi birtingarmyndum illsku
  • Mismunandi voðaverkum í sögunni sem og nútímanum
  • mismunandi kenningum um orsakir fyrirrangri breytni
  • aðferðum til að minnka böl heimsins
  • voðaverkum sem ríki og stofnanir geta beitt
  • áhrifum stríðsmenningar á ýmsa þætti samfélagsins

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa heimspekitexta
  • greina heimspekitexta
  • leita sér upplýsinga um voðaverk með fjölbreyttum hætti, til að mynda í bókum og fréttamiðlum
  • geti beitt gagnrýnni hugsun
  • tjá sig um málefni líðandi stundar
  • bera virðingu fyrir skoðunum annarra
  • bera kennsl á áhrif stríðsmenningar á samfélög

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina voðaverk sem hafa verið framin í sögunni með hliðsjón af kenningum um illskuna
  • greina voðaverk sem eru framin í nútímanum með hliðsjón af kenningum um illskuna
  • geti tekið rökstudda afstöðu til málefni líðandi stunda og kynnt efnið fyrir öðrum með skýrum og greinargóðum hætti
  • geta komið með uppástungur til að minnka böl heimsins