Í áfanganum er fjallað um nánasta umhverfi sjúklinga á heilbrigðisstofnunum og á heimili hans svo sem sjúkrarúmið, sjúkrastofuna og ýmis hjálpartæki. Fjallað er um persónulegar þarfir sjúklinga og leiðir til að mæta þeim. Fjallað er um fylgikvilla rúmlegu, mælingar og mat á lífsmörkum og skráningu þeirra, þar með talið öndunaraðstoð og súrefnisgjöf. Fjallað er um hreinlæti, smitgát, sýnatökur og frágang sýna. Áfanginn er að mestu verklegur. Að auki er fjallað um skráningu og meðferð persónuupplýsinga í sjúkraskrá, varðveislu gagna, þagnarskyldu um upplýsingar í sjúkraskrám og rafræna sjúkraskrá. Farið í lög um sjúkraskrá, réttindi sjúklinga, hlutverk og skyldur heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við sjúkraskrá.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: