HMÓT2HG04 - Hármótun 2

Lýsing

Áfangalýsing:

Nemandinn kynnist hugmyndum og þjálfast í tækni, aðferðum og hönnun á bak við uppbyggingu og formgerð greiðslna á síðu hári. Hann lærir að blanda saman margvíslegri tækni, með notkun á rúllum, bylgjum og ýmsum hitatækjum. Kenndar verða léttar greiðslur, og dag – og kvöldgreiðslur í mismunandi hárlengdir. Nemandinn kynnist mismunandi tímabilum í sögu hárgreiðslu. Blástur er þjálfaður, unnið er með ólík form og hárlengdir. Áfram er unnið með notkun og gerð verklýsinga. Verkefnin unnin á æfingarhöfuð og módel.

Forkröfur: HMÓT1HG04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • upprúllimiðað við fyrirhugaða útkomu, bæði á síðu og stuttu hári.
  • mismunandi formi á bylgjugreiðslum.
  • notkun bylgjugreiðu og klípa.
  • mismunandi tækni við blástur, stutt og sítt hár
  • mismunandi stíl ogstílbrigðumá hárgreiðslum.
  • vali og notkun mótunarefna.
  • notkun hitajárna.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja og nota rúllur sem hæfa fyrirhugaðri útkomu og greiða hár samkvæmt fyrir fram ákveðnu formi.
  • gera eigin verklýsingar og fara eftir þeim við hárgreiðslu.
  • greiða blautbylgjur og setja í klípur.
  • setja klípur í heilt höfuð með eða án skiptingar.
  • greiða úr svo út komi bylgjur.
  • blása og krulla samkvæmt kennslukerfi.
  • beita grunntækni við gerð greiðslna, útfæra greiðslur í mismunandi hárlengdir.
  • móta hár með rúllum, járnum, nálum og klípum.
  • nota viðeigandi hárskraut.
  • útfæra mismunandi bylgju- og tímabilagreiðslur.
  • blása sítt og stutt hár eftirfyrir framákveðnu formi.
  • blása stífan rúllublástur ífyrir framákveðið form.
  • blása form og bylgjublástur.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera skiptingar og upprúllmiðað við fyrirhugaða útkomu.
  • framkvæma einfaldar og útfæra ólíkar greiðslur með tilliti til forms, áferðar og heildarútlits.
  • útfæra ólíkar greiðslur fyrir mismunandi hárgerðir og –lengdir.
  • móta bylgjur í hár með blæstri, klípum og vatnsliðun.
  • ná tökum á sígildu formi í blæstri í sítt og stutt hár.
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.