HÖNN2HA05 - Hönnun í atvinnulífinu

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist fjölbreytileika hönnunar og markaðslögmálum greinarinnar í atvinnulífinu. Nemendur kynnist einnig tengslum greinarinnar við atvinnulífið í formi nýsköpunar, vöruþróunar, menningu, lista og stílsögu. Fjallað verður um ýmsa grunnþætti varðandi hráefnis- og vöruþekkingu og lög og reglugerðir. Mikilvægt er að nemendur átti sig á hlutverki þekkingar í hönnun og nýsköpun. Nemendum verði ljós gagnsemi hönnunar ásamt fjölbreyttum starfsvettvangi í samfélaginu. Nemendur halda dagbók, útbúa skýrslur vegna starfskynninga og kynna hver fyrir öðrum.

Forkröfur: HÖNN1BL05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • hlutverki hönnunar- og markaðsgreina í tengslum við atvinnulíf, þróun og nýsköpun
  • Fyrirtækjum, menntunarmöguleikum, stofnunum, lögum og reglugerðum, réttindum og skyldum sem heyra undir hönnunar- og markaðsgreinar
  • Mikilvægi starfskynninga og því að fylgjast með framleiðanda í atvinnulífinu
  • Framleiðslu- og markaðsferli á vöru eða þjónustu
  • Hvernig hugmynd er breytt í söluvöru og hvernig framleiðsla og sala tengist kröfum og réttindum neytenda
  • Hönnunarlögum, hönnunarvernd og einkaleyfum
  • Tengslum greinarinnar við menningu og listir
  • Starfs- og markaðsfærni greinarinnar í formi nýsköpunar, vöruþróunar og markaðssetningu
  • Gagnsemi hönnunar í umhverfi okkar og samtímanum

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina þarfir, tækifæri og möguleika við hönnun og framleiðslu á hlut eða upplifun í tengslum við vettvangs- og vinnustaðaheimsóknir í atvinnulífinu
  • Tengja námið við framhaldsnám eða þátttöku í atvinnulífi
  • Nýta þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu og bera saman við eigin reynsluheim
  • Greina hvað hefur áhrif á neysluvenjur, breyttar þarfir, tækniframfarir og nýjungar
  • Greina sambandið milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstaðna
  • Skynja hvernig hönnun, framleiðsla og markaðssetning helst í hendur
  • Greina það ferli sem fyrirtæki þurfa að fara í gegn um til þess að koma vöru/þjónustu í sölu
  • Greina hvernig verki er skipt upp í verkþætti, verkaskiptingu, framleiðsluferli og gerð áætlana

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hafa innsýn í skipulagningu og viðburði á sviði hönnunar
  • Geta borið saman og gagnrýnt hönnun í samtímanum
  • Geta gert vandaða skýrslu og kynnt hana viðeigandi aðilum