HSNY1HG04 - Hársnyrting 1

Áfangalýsing:

Nemandinn kynnist grunnatriðum kennslukerfi hársnyrtináms við klippingu á æfingahöfði og tileinkar sér helstu hugtök fagsins. Áhersla er lögð á að horfa og hugsa eins og hönnuður. Farið er í grunnform klippinga, Jafnsítt, flái, auknar styttur og jafnar styttur. Nemandinn kynnist mikilvægi smitvarna og helstu öryggisþátta. Hann fær að auki grunnþjálfun í gerð og notkun verklýsinga í klippingu og litun. Nemandi fær grunnþjálfun í meðferð og beitingu áhalda ásamt tækni við klippingu og auk gerðar verklýsinga fyrir klippingu og nýtingu þeirra. Kynnt er vinna með klippivélum með mismunandi kömbum og mismunandi aðferðir við þynningu í hári. Unnið er með æfingahöfuð og hártoppa. Nemandinn lærir um lögmál litanna og einkenni þeirra og fræðist um helstu áhöld og efni sem notuð eru til hárlitunar. Farið er í litafræði og kennt að lesa á liti og litaspjöld. Kennd eru grunnatriði á íburði litar s.s. litur í rót og heillitur. Nemandinn kynnist mikilvægi smitvarna og helstu öryggisþátta. Hann fær að auki grunnþjálfun í gerð og notkun verklýsinga í litun. Nemandi fær grunnþjálfun í meðferð og beitingu áhalda ásamt tækni við litun auk gerðar verklýsinga fyrir litun. Nemandinn æfist í að bera lit í hár og kynnist ólíkum aðferðum við litatækni s.s. partalitun og mismunandi stríputækni. Unnið er með hártoppa og æfingahöfuð.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • því kennslukerfi sem unnið er eftir og hvernig það er notað við hönnun og framkvæmd klippinga.
  • hugtökunum hverfipunktur, jafnsítt og flái og þeim hárformum sem hugtökin tákna.
  • helstu áhöldum sem notuð eru við klippingar.
  • helstu smitleiðum.
  • ýmsum hugtökum sem tengjas tlitafræði og litun.
  • litaspjöldumog notkun þeirra.
  • grunnlitumog blöndunarlitum.
  • notkun og umhirðu áhalda sem notuð eru við hárlitun.
  • gerð lita verklýsinga og tilgangi þeirra.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • klippa æfingahöfuð sítt- og stutt hár, einnig vanga og hnakkatopp í jafnsítt form og fláa.
  • gera verklýsingu fyrir klippingu.
  • greina náttúrulit viðskiptavinar út frá litaspjaldi.
  • blanda hárlit samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
  • lesa og skiljalitaspjöld.
  • þekkja tóna í háralit.
  • gera litaverklýsingar

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hafa gott vald á greiðu, skærum og þynningarskærum og á samspili blásara, bursta og greiðu.
  • sjá samhengi í verklýsingu og því verki sem hún stendur fyrir.
  • þekkja ólík form í hársnyrtingu og hafa vald á aðferðum til að ná þeim fram.
  • velja mismunandi gerðir lita eftir litaspjöldum.
  • bera lit í rót og heillita hár.
  • gera einfaldar strípur