HSNY2HG04 - Hársnyrting 2

Áfangalýsing:

Klipping: Nemandinn fær þjálfun í að blanda saman mismunandi formum við klippingu á stuttum og síðum línum á módelum og æfingahöfðum. Þekking og beiting mismunandi aðferða við þynningu er aukin, einnig notkun klippivéla. Nemandinn lærir greina klippingar út frá myndum og gera verklýsingar fyrir þær. Í áfanganum er lögð rík áhersla á gerð og nýtingu verklýsinga við klippingar. Þekking og beiting mismunandi aðferða við þynningu er aukin, einnig notkun klippivéla. Nemandinn öðlast aukna færni í litun og þjálfast í bera lit í hár innan ákveðins tímaramma. Þekking og færni við ólíkar aðferðir í litatækni og strípulitun er efld. Kynnt er litaleiðrétting auk forlitunar og þjálfuð gerð verklýsinga og vinna út frá þeim. Unnið er með æfingahöfuð og módel.

Forkröfur: HSNT1HG04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum.
  • notkun og umhirðu klippivéla.
  • notkun og gerð verklýsinga.
  • a.m.k. þremur tegundum hárlitunarefna.
  • notkun litaspjalda.
  • mismunandi gerðum lita s.s. varanlegum og hálfvaranlegum.
  • gerð verklýsinga.
  • mismunandi þekju og virkni lita.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • klippa hnakka og hliðartopp snöggt með vél og skærum.
  • klippa formklippingu á æfingahöfði samkvæmt kennslukerfi.
  • klippa sítt og stutt hár samkvæmt verklýsingu á æfingahöfði.
  • gera verklýsingar fyrir síðar og stuttar klippingar.
  • greina náttúrulit út frá litaspjaldi, velja og blanda hárlit samkvæmt því.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptan legum kömbum.
  • gera verklýsingar.
  • geta séð fyrir sér form í klippingum.
  • velja og bera lit í hár.
  • velja mismunandi tækni til litunnar.
  • velja mismunandi styrkleika/þekju litar.
  • fara eftir þar til gerðum verklýsingum um lit.