IÐNF1HG05 - Iðnfræði 1

Áfangalýsing:

Kenndir grunnþættir þess kennslukerfis sem notað er við kennslu verklegra þátta. Fjallað er um kenningar um hármótun og aðferðir sem notaðar eru til að móta hár. Notkun og beiting hinna ýmsu klippiáhalda, unnið í verklýsingargerð. Fjallað er um mannleg samskipti, þjónustulund, persónulegt hreinlæti, stöður og vinnustellingar. Nemandinn fær innsýn í mikilvægi persónulegrar og fagmannlegrar þjónustu við viðskiptavini. Fjallað er m.a. um vinnustaðinn. Einnig er fjallað um andlega vellíðan, Læra að þekkja uppbyggingu hárs. Nemendur fræðast um hárgerðir, uppbyggingu og vaxtarferli hársins. Unnið með ensk fagorð. Nemandinn fræðist um sjálfbærni og vistsporið.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu hárs og eiginleikum þess.
  • helstu þáttum kennslukerfisins.
  • helstu fagorðum hársnyrtingu á ensku.
  • almennum umgengni reglum og þjónustulund.
  • mikilvægi réttrar líkamsbeitingar.
  • öryggis- og varúðarráðstöfunum varðandi vinnu sína

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • eiga grunnsamskipti við viðskiptavini t.d. í móttöku og símavörslu.
  • skilgreina grunnform í klippingu

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • efla mannleg samskipti og þjónustuhæfni.
  • bæta líkamsvitund sína.
  • skilgreina grunnform í klippingu.
  • beita helstu fagorðum hársnyrtingu á ensku.