ÍSAN1GR05 - Íslenska sem annað mál

Lýsing

Áfangalýsing:

Grunnáfangi í íslensku fyrir nemendur með erlendan bakgrunn. Áhersla er lögð á alla færniþætti tungumálsins (skilningur, talað mál og ritun). Viðfangsefni tengjast daglegu lífi. Nemendur lesa stutta texta og léttlestrarsögur. Unnið er með helstu atriði íslenskrar málfræði.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • algengustu orðflokkum og beygingum
  • yfirhugtökum, andheitum og samheitum
  • orðaforða er tengist daglegu lífi og athöfnum

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa einfaldan texta með réttum framburði, áherslum og hrynjandi
  • greina lykilatriði og innihald í texta
  • beita einföldum málfræðireglum í töluðu og rituðu máli

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig á íslensku
  • nota íslenskt mál í námi og verkefnum
  • fara eftir munnlegum og skriflegum leiðbeiningum