ÍSAN1LM05 - Íslenska sem annað mál - Lestur og mál

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð er áhersla á að nemendur þjálfist í lesskilningi, samræðum, hlustun og ritun og auki orðaforða sinn tengdan líðan, tilfinningum í daglegu lífi, félagslífi og samskiptum. Einnig er lögð áhersla á samvinnufærni og umræður. Málfræði og orðaforði eru kennd samhliða.  

Forkröfur: 

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða tengdum líðan, tilfinningum í daglegu lífi, félagslífi, samskiptum 
  • ritreglum og ritgerðasmíð 
  • mismunandi bakgrunni fólks 

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa skáldskap á íslensku 
  • skrifa samhangandi texta 
  • vinna í hóp 

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • setja sig í spor annarra 
  • ræða um bókmenntir 
  • koma skoðunum sínum á framfæri á skýran hátt