ÍSLE2MG05 - Íslenska - bókmenntir, mál- og menningarsaga
Áfangalýsing:
Nemendur kynnast norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Enn fremur þróun tungumálsins. Þeir lesa ólíka texta frá ýmsum tímabilum. Nemendur fá þjálfun í munnlegri tjáningu og ritun. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í úrvinnslu heimilda um sérhæft efni.
Forkröfur: ÍSLE2BR05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fornum hugmyndaheimi norrænna manna, norrænum goðum og sögum af þeim og norrænum kveðskap
- sögu íslenskrar tungu frá upphafi til okkar daga, einkennum hennar og tengslum við önnur tungumál
- fjölbreyttum tegundum texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vitna í heimildir, vísa til þeirra og skrá á viðeigandi hátt
- tjá skoðanir sínar á námsefninu með skipulögðum og rökstuddum hætti
- lesa sér til gagns og gamans mismunandi tegundir texta og fjalla um inntak þeirra1
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- átta sig á samfélagslegriskírskotun og dýprimerkingutexta
- leggja mat á gildi heimilda og vinna úr þeim með skipulögðum hætti
- greina og túlka bókmenntatexta og færa rök fyrir skoðunum sínum jafnt munnlega sem skriflega
- skrifa vandaðan texta á góðu og blæbrigðaríku máli
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
Áfangakeðja í íslensku