ÍSLE3BB05 - Íslenska - barnabókmenntir

Áfangalýsing:

Í áfanganum kynnast nemendur sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabókmennta og fræðast um mál og menningarheim barna- og unglingabóka. Ennfremur um þróun barna- og unglingabókmennta frá upphafi ritunar þeirra til dagsins í dag sem og mismunandi birtingarform þeirra. Nemendur fá þjálfun í lestri fræðigreina um efnið og gera grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega.

Forkröfur: ÍSLE2MG05

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • helstu bókmenntafræðihugtökum sem tengjast barna- og unglingabókum
  • flokkun barna- og unglingabóka og geri sér grein fyrir ólíku efni þeirra, eðli og tilgangi
  • fjölbreyttum tegundum texta
  • þróun barna- og unglingabókmennta


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skrifa heimildaritgerðir og styttri texta um barnaefni
  • kynna verkefni sín munnlega og skriflega
  • átta sig á hvað einkennir góðar barna- og unglingabækur
  • nýta sér fræðileg vinnubrögð við úrvinnslu efnis


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja á gagnrýninn hátt lesefni handa börnum og unglingum
  • meta með gagnrýnum huga barnaefni af ýmsu tagi
  • semja efni ætlað börnum
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra

 

Áfangakeðja í íslensku