ÍÞRÓ1AÍ02 - Almennar íþróttir á starfsbraut

Áfangalýsing:

Í þessum áfanga er lög áhersla á  útivist, hreyfingu og að fá nemendur til þess að kynnast nýrri hreyfingu.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • að geta notað útivist sem heilsurækt.
  • íþróttunum boccia,bandý og mögulega fleiri greinar.
  • mikilvægi næringar.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja sér hreyfingu við hæfi.
  • stunda hreyfingu sem honum finnst skemmtileg.
  • spila íþróttir eins og boccia og bandý.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hugsa um eigið heilbrigði með hollum lífsháttum til framtíðar.