ÍÞRÓ1AL01 - Íþróttir og útivist

Áfangalýsing:

Í boði eru ýmsar íþróttagreinar í sal eins og líkamsrækt, boccia, ringó, bandý, sjósund og fleira. Útivist í formi göngu eða skokks. Áhersla er lögð á að nemendur og kennari skipuleggja í sameiningu þá hreyfingu sem nemendur vilja kynnast og prófa. Svo lengi sem fjöldi leyfir. Markmiðið er að nemendur kynnist sem flestum íþróttagreinum og tegundum af heilsurækt. Í þeim tilgangi að finna sig í einhverju af því sem er í boði.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvaða útivist er í boði á svæðinu
  • að setja upp áætlun fyrir sjálfan sig er varðar útivist
  • geta notað útivist sem líkamsrækt, geti fylgt helstu reglum í mismunandi íþróttagreinum eins og ringó og boccia

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja sér þá hreyfingu sem hann telur að henti sér
  • stunda hreyfingu sem honum finnst skemmtileg
  • spila íþróttir eins og ringó

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stunda hreyfingu til líkamsræktar sem hann hefur sjálfur skipulagt
  • hugsa um eigið heilbrigði með hollum lífsháttum til framtíðar.