ÍÞRSVIÐ2UA05 - Íþróttasvið - með áherslu á umhverfi afreksíþróttamanns

Áfangalýsing:

Nemendur stunda markvisst og skipulega afreksþjálfun í íþrótt sinni 4x eða oftar í viku með sérhæfðum þjálfara eða fagaðila auk teygjutíma 1x í viku. Í áfanganum er einn bóklegur tími á viku. Markmið áfangans er að efla nemandann sem íþróttamann, bæði líkamlega og faglega. Fagbókleg kennsla þar sem fjallað er um ýmsa þætti í umhverfi afreksíþróttafólks sem geta haft áhrif á íþróttamanninn.

Forkröfur: 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mörgum ólíkum þáttum sem áhrif hafa á líf afreksíþróttamannsins, s.s. lyfjaeftirlitsreglum og samningum.
  • flóknum tækniatriðum í viðkomandi íþróttagrein.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • fást við ólíkar aðstæður og kröfur sem afreksíþróttafólk býr við.
  • ástunda góða og rétta líkamsbeitingu við þjálfun sinnar íþróttagreinar.
  • framkvæma flókin tæknileg atriði í hreyfingum í viðkomandi íþróttagrein.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • setja sig í spor annarra og taka upplýstar ákvarðanir í þeim aðstæðum sem upp geta komið, s.s. í samningsmálum.
  • auka styrk, tækni og hraða eftir því sem við á í hverri íþróttagrein.
  • nota rétta tækni í flóknum hreyfingum í viðkomandi íþróttagrein, t.d. sendingum, móttöku og skotum.