Í áfanganum kynnast nemendur grundvallaratriðum í gerð heimildamynda og ólíkum stílbrögðum. Nemendur horfa á ólíkar heimildamyndir, rýna í þær og ræða í hópi. Nemendur fá tækifæri til að þjálfa færni til að vinna hugmynd í form heimildamyndar og skoða og greina eigið samfélag. Nemendur vinna að sjálfstæðu verkefni, skrifa handrit, taka upp myndefni og klippa saman upptökurnar svo úr verði mynd. Lögð er áhersla á að þjálfa næmni og skilning á samfélaginu í kringum okkur og miðla því á sjónrænan máta.
Forkröfur: FÉLV1IF05
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum stílbrögðum heimildamynda
- grunnferli kvikmyndagerðar, þar á meðal hugmyndavinnu, handritsgerð, töku og klippingu.
- hlutverki heimildamynda í samfélaginu og hvernig þær spegla og túlka viðfangsefni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina og rýna í heimildamyndir með tilliti til frásagnar, stílbragða og fagurfræði.
- framkvæma hugmyndavinnu og þróa hana í handrit að stuttri heimildamynd.
- tala upp heimildamyndatengt myndefni með viðeigandi tækni og vinnubrögðum bæði í samvinnu og einstaklingsvinnu
- klippa saman upptökur í heildstæða frásögn og beita grunnatriðumeftirvinnslu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta kvikmyndamiðilinn til að tjá eigin sýn á samfélagið og vinna úr raunverulegum viðfangsefnum.
- skrifa handrit að heimildamynd.
- sýna skapandi nálgun við að móta og miðla sjónrænni frásögn.
- geta unnið sjálfstætt að heimildamyndaverkefni frá hugmynd til lokaafurðar.
- túlka samfélagsleg málefni af næmni og gagnrýnni hugsun og miðlað þeim með ábyrgum og meðvituðum hætti.