KYN1KS02 - Kynfræðsla, kynheilbrigði og samskipti

Áfangalýsing:

Í áfanganum verður farið yfir vítt svið kynfræðslu sem fer inn á svið sjálfsmyndar, samfélags, kynlífs og kynverundar. Nemendur fá öruggt rými til að rækta sjálfsþekkingu og fræðast um kynverundina og kynferðisleg og/eða rómantísk samskipti. Jafnréttis- og kynjafræði er fléttað inn í alla námsþætti og við skoðum hvernig tilfinningar, sjálfsmynd, félagsmótun og samskipti geta haft áhrif á væntingar og mörk.
Áfanginn er nemendamiðaður og hvert þema valið í samstarfi við kennara út frá forþekkingu nemenda og markmiðum áfangans.
Stuðst verður við kennarahandbókina Kynheilbrigði og vellíðan ungs fólks sem kom út 2023.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim félagslegu þáttum sem hafa áhrif á kynverundina. 
  • hvernig sjálfsmynd og líkamsímynd hafa áhrif á kynverundina. 
  • hugtökunum: samþykki, mörk, kynlífshandrit, kynhneigðir, líkamsvirðing, heterónorm og hinseginleiki.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá eigin sýn á þáttum tengdum kynverundinni og kynheilbrigði.
  • vinna með hópnum í þekkingaleit í þeim tilgangi að dýpka þekkingu sína á viðfangsefninu.
  • skila fjölbreyttum og vel unnum verkefnum byggðum á heimildum um það þema sem tekið er fyrir hverju sinni.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera sér grein fyrir eigin skoðunum á kynhegðun og kynheilbrigði. 
  • taka ákvarðanir um eigin kynhegðun og heilbrigði. 
  • horfa á samfélagið og menninguna með gagnrýnum hætti. 
  • útbúa fræðsluefni fyrir jafningja um kynheilbrigðismál.
  • öðlast sjálfsöryggi til þess að kynna efni tengt kynheilbrigði.