LIME2LM05 - Listir og menning
Áfangalýsing:
Markmið áfangans er að nemandinn geri sér grein fyrir eðli þeirra þátta sem mótað hafa listsköpun mannsins í gegnum tíðina. Áfanganum er skipt upp í sex lotur þar sem nemendur kynnast og vinna heildrænt með menningarsamhengið á ákveðnum stað á ákveðnum tíma. Þeir skoða alla þætti listalífsins, myndlist, handverk, hönnun, tónlist, dans og leiklist, hvern í samhengi við annan og við félagslegt og heimspekilegt umhverfi. Vinna í áfanganum er bæði einstaklingsvinna og hópavinna þar sem teknir eru fyrir ákveðnir þættir, heimilda leitað, unnið úr þeim og afraksturinn kynntur öðrum nemendum. Áfanginn kallar á kennsluhætti þar sem nemendur eru virkir og sjálfstæðir í þekkingarleit.
Forkröfur: FÉLV1IF05
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
- listum og menningu samtímans
- helstu listfræðilegu aðferðum og hugtökum mismunandi listgreina
- helstu einkennum, aðferðum og efnisnotkun mismunandi listgreina
- mikilvægi allrar listsköpunar í samfélaginu
- staðsetningu og hlutverki lista- og menningarsetrum samfélagsins
- listrænum menningararfi í íslensku samfélagi
- að skipuleggja einstök verkefni þar sem sótt er í margs konar listform og samþættingu

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta fjallað um hugmyndir og verk annarra á gagnrýninn og skapandi hátt
- geta fjallað um list og menningu samtímans út frá eigin forsendum og annarra
- vera læs á gildi menningar í nútímasamfélagi
Áfangakeðja í lista- og nýsköpunargreinum