NÁTV1IN05 - Inngangur að náttúruvísindum

Áfangalýsing:

Í áfanganum verður fjallað um náttúruvísindi í víðu samhengi, efnafræði, líffræði, jarðfræði og eðlisfræði og hvernig þessar greinar tengjast. Í áfanganum verður fjallað um vísindalega aðferðafræði og grunnhugtök hennar: Tilraun/könnun, breyta, tilgáta, kenning og lögmál. Nemendur eru þjálfaðir í meðferð á tölulegum gögnum, vinnu með mismunandi mælieiningar ásamt réttri notkun heimilda samkvæmt APA kerfinu í verkefnavinnu áfangans. Fjallað er um orkuhugtakið, orkuauðlindir og mögulega nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda í heimabyggð. Aðrir mikilvægir námsþættir varða þekkingu á vistkerfum jarðar, líf- og lífeðlisfræði dýra og plantna, hringrás efna og sjálfbærni til hagnýtingar í nútíma samfélagi. Áfanginn er byggður upp með mörgum mismunandi verkefnum í leiðsagnarnámi. Lögð er sérstök áhersla á læsi gagna í myndum og gröfum ásamt sköpun við lausn verkefna í áfanganum. Ýmis öpp og fræðslumyndbönd eru einnig notuð.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • Mismunandi tegundum heimilda

  • Mælingum í náttúruvísindum og stöðluðum mælieiningum

  • Framsetningu þekkingar í formi skýrslu

  • Helstu greinum náttúruvísinda

  • Lífheiminum og samspili lífvera við umhverfi sitt

  • Sjálfbærni

  • Helstu orkulindum Jarðarbúa og orkunotkun

  • Mikilvægi vatns fyrir lífið á jörðinni

  • Uppbyggingu efna og grunnþátta í efnafræði

  • Innrænum og útrænum öflum jarðar

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:

  • Ræða og kynna efni áfangans

  • Framsetningu þekkingar í formi skýrslu

  • Nota viðeigandi heimildir á heiðvirðan hátt

  • Nota og skilja SI-einingar á réttan hátt í útreikningum og framsetningu gagna

  • Lýsa einkennum lífvera og umhverfisþátta

  • Útskýra uppruna og hringrás orku á jörðinni

  • Útskýra sjálfbærni, loftslagsbreytingar, gróðurhúsaáhrif og mengun

  • Útskýra mikilvægi vatns og áhrif þess á lífverur

  • Útskýra byggingu efna (frá frumeindum til efnasambanda)

  • Lýsa áhrifum innrænna og útrænna afla á jarðskorpuna

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í umræðu um efni áfangans á ábyrgan og sjálfstæðan hátt

  • geta tekið rökstudda og gagnrýna afstöðu til málefna sem fjallað er í áfanganum

  • átta sig á mikilvægi þess að hafa nokkra yfirsýn yfir megin viðföng helstu raungreina til skilnings á ýmsum umhverfis- og heilsufarslegum álitamálum

  • draga ályktanir af rannsóknarniðurstöðum og rökstyðja þær út frá viðurkenndum heimildum

  • stuðla að sjálfbærni í samfélaginu, í starfi og í leik

  • afla sér víðtækari þekkingar á sviði náttúruvísinda

 

Áfangakeðja í raungreinum