Að áfanganum loknum eiga nemendur að geta smíðað eftir nákvæmum vinnuteikningum smíðagripi úr 5 –12 mm plötujárni og prófílum og notað til þess algengustu vélar til plötuvinnu, s.s. vals, beygjuvél, plötu- og prófílklippur. Ennfremur geta þeir skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu efnisflokkum smíðastáls.
- helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við plötusmíði.
- þekkja helstu efniseiginleika ryðfrís stáls.
- algengustu skurðaraðferðum.
- hve rétt vinnuröð við gerð smíðahluta er mikilvæg.
- helstu aðferðum við réttingu á stáli.
- öryggismálum sem tengjast vinnu við plötujárn.
- hlífðarbúnaði sem við á þegar unnið er með vélum og verkfærum sem notuð eru við plötusmíðar.
- vörnum gegn hávaðamengun.
- hlífðarfatnaði og hlífum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota allar algengar málmsmíðavélar, verkfæri og hjálparbúnað sem þeim fylgja og geta beitt honum til nýsmíða úr plötum og prófílum.
- framkvæma málmskurð með gas- og plasmaskurðartækjum.
- rétta plötu- og stangarefni með algengum kald- og hitaréttingaraðferðum.
- smíða gripi úr plötum og prófílum eftir nákvæmum vinnuteikningum.
- vinna efnislista út frá teikningum og verklýsingum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- smíða nýtt úr plötum og prófílum.
- lesa teikningar og vinna eftir þeim.
- framkvæma málmskurð með gas- og plasmaskurðartækjum með málfrávikum ± 1 mm.
- rétt plötu- og stangarefni með algengum kald- og hitaréttingaraðferðum.
- beita helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu efni.
- geta skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni og gæði.