RAFL1GB04 - Raflagnir 2

Áfangalýsing:

Nemendur kynnast raflögnum fyrir mismunandi straumþol, rafmagnstöflum og töflubúnaði. Helstu heimilistæki eru kynnt og orkunotkun þeirra skoðuð. Nemendur læra hvernig reglur og staðlar koma við sögu í störfum rafiðnaðarmanna og átta sig á mikilvægi þeirra. Farið verður í mismunandi gerðir rofa, lagnir íbúðarhúsa og greinatöflur tengdar, jafnframt því sem nemendur leggja lagnir inni í veggjum, öryggismál kynnt og hvernig á að haga sér við hinar ýmsu aðstæður. Nemendur læra að velja leiðara miðað við orkunotkun og velja varbúnað við hæfi.

Forkröfur: RAFL1GA04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Slysahættum sem eru á vinnu við rafmagn á vinnustöðum.
  • Utanaðkomandi aðstæðum á raflagnir eins og raka, varma og þar sem gas eða eldfim efni eru.
  • Öryggis- og reglugeðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir.
  • Helstu heimilistækjum og straumþörf þeirra.
  • Mikilvægi fagmannlegra vinnubragða.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Undirbúa verk með teikningu, efnisvali og verkfærum.
  • Tengja ýmsa rofa og búnað sem tilheyra minni veitum.
  • Forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum.
  • Draga leiðara í rör.
  • Skipuleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum.
  • Tengja helstu rofa og tengla í minni veitum.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Gera sér grein fyrir hættum sem leynast við vinnu með rafmagn og verkfæri.
  • Gera sér grein fyrir orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana.
  • Velja raflagnaefni í minni veitur.
  • Leggja raflagnir og tengja í minni veitur.