RAFM1GA05 - Rafmagnsfræði og mælingar

Lýsing

Áfangalýsing:

Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums. Lögð er áhersla á að nemendur læri að nýta sér þessi lögmál við reikninga og gerðar prófanir á þeim með mælingum í jafnstraumsrásum. Farið er yfir mismunandi gerðir spennugjafa auk þess sem nemendur eiga að þekkja helstu teiknitákn í einföldum jafnstraumsrásum.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hugtökum, s.s. straumi, spennu og viðnámi
  • Teiknitáknum fyrir mæla, spennugjafa og ýmsar gerðir viðnáma.
  • Helstu lögmálum, s.s. ohms- kirkhoffs- og afllögmáli.
  • Helstu forskeytum eininga, s.s. milli, míkró, nanó o.s.frv

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Framkvæma reikninga í einföldum jafnstraumsrásum.
  • Teikna einfaldar jafnstraumsrásir.
  • Nota fjölsviðsmæli (AVO mæli).
  • Tengja einfaldar jafnstraumsrásir.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tengja einfaldar jafnstraumsrásir eftir teikningu og framkvæma mælingar á þeim.
  • Reikna einfaldar jafnstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með notkun lögmála og/eða mælingum.