RAFM2GA05 - Rafmagnsfræði 2 fyrir rafvirkja

Áfangalýsing:

Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu-/straumgilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í útreikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemendur læra hvað fasvik er og geti reiknað það, mælt og leiðrétt. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraum svo sem sveiflusjár og tíðnigjafa auk þess sem nemendur skulu læra að nýta sér hermiforrit til mælinga.

Forkröfur: RAFM1GA05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli.
  • Helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi.
  • Teiknitáknum í span- og rýmdarrásum.
  • Helstu reikningum í riðstraumsrásum.
  • Fasviki.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani.
  • Nota helstu mælitæki fyrir riðstraumsrásir.
  • Teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tengja einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar.
  • Reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum.
  • Tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum með hjálp hermiforrits.
  • Skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra.