Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu og sögu raforkukerfisins á Íslandi, allt frá því að vinnsla raforku hófst til dagsins í dag. Kynnt eru áhrif raforkuvinnslu á menningu og umhverfi. Farið er yfir möguleika mismunandi orkugjafa auk vatnsorku, s.s gufuorku, sólarorku og vindorku. Fjallað er um rafala í raforkuverum og þann stjórnbúnað sem fylgir rekstri þeirra. Farið er í uppbyggingu og virkni rafvéla fyrir rakstraum og riðstraum og sérstök áhersla lögð á þriggja fasa kerfi og búnað þeirra t.d. rafala, hitatæki, spenna og mótora. Farið er yfir myndun hverfisegulsviðs og áhrif þess í spanmótorum. Fjallað er um tengingar á þriggjafasa spennum og vélum og gerðar tengimyndir af þeim samkvæmt viðurkenndum stöðlum. Gerð er grein fyrir helstu þriggjafasa mælitækjum og tengingu þeirra og fjallað um áhrif bilana á rekstur þrífasa kerfa. Leyst eru einföld verkefni er varða rekstur þriggjafasa spenna, tækja og véla.
Forkröfur: RAFM2GA05
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: