RAFR3RB05 - Rafmagnsfræði sterkstraums 2

Áfangalýsing:

Í áfanganum er fjallað um raforkukerfið á Íslandi, allt frá orkuverum til notenda. Farið er yfir skipulag raforkukerfa, þ.e. framleiðslu, flutning og dreifingu. Fjallað er um uppbyggingu og búnað í orkuverum, tengivirkjum, aðveitustöðvum og helstu rekstrareiningar sem tengjast þeim s.s. aflspenna, rofabúnað, jarðstrengi og loftlínur. Fjallað er um helstu öryggisráðstafanir í raforkukerfum t.d. jarðskaut, jarðtengikerfi og spennujöfnun. Farið yfir öryggisreglur vegna vinnu við raforkukerfi og gerð grein fyrir aðgerðarröð við rof og spennusetningu á línu eða öðrum rekstrareiningum. Fjallað er um uppbyggingu helstu lágspennudreifikerfa og gerðar jafngildismyndir af hverri gerð (samkvæmt Evrópureglum CENELEC). Farið er yfir rekstrareiginleika raforkukerfa. Farið er yfir algengar bilanir í raforkukerfum og helsta varnarbúnað í þeim og virkni hans. Einnig er fjallað um mismunandi álag í fjölfasakerfum, mikilvægi álagsjöfnunar og áhrif mismunandi álags í fjölfasa lágspennudreifikerfum. Þá er gerð grein fyrir áhrifum jarðskautsviðnáms og hringrásarviðnáms á bilunarstrauma í neysluveitum.

Forkröfur: RAFR2GA05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu gerðum mastra í raforkukerfum.
  • Afl-, álags- og skilrofum og mismunandi eiginleikum þeirra t.d. rofgetu.
  • Uppbyggingu raforkukerfisins og teiknitáknum á uppdráttum af því.
  • Notkun persónuhlífa fyrir vinnu í háspennuvirki í samræmi við öryggiskröfur og sérhæfðan búnað.
  • Öryggisreglum (fimm) fyrir vinnu í og nálægt háspennuvirkjum.
  • Helstu gerðum lágspennudreifikerfa hér á landi og hlutverki núll-, varnar- og varnarnúllleiðara.
  • Hættu- og öryggisfjarlægðum í raforkukerfinu og hvert er hlutverki rekstrar- og varnarjarðskauta og varnar- og spennujöfnunarleiðara.
  • Varnarliðum og varbúnaði gegn skaðlegum áhrifum yfirstrauma og bilunarstrauma í raforkukerfi.
  • Mismunandi álagi í fjölfasakerfum og mikilvægi álagsjöfnunar.
  • Fasarofi í fjölfasa kerfi og áhrifum þess.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota færanleg mælitæki.
  • Greina uppbyggingu tengivirkja og fyrikomulag teina.
  • Greina reitaskiptingu í tengivirki og hvaða búnaður er í hverjum reit.
  • Gera skýrslu um skoðunarferð í tengivirki og um rafbúnað þar.
  • Tengja álag við þrífasa 400/230 V kerfi og mæla spennur, álagsstrauma, spennufall og afl.
  • Tengja ójafnlægt álag við þrífasa 230 V og 400/230 V kerfi og mæla spennu og álagsstrauma.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Lesa einlínumyndir af tengivirkjum með mismunandi fyrirkomulagi safnteina og rafbúnaði þeirra.
  • Teikna tengimynd af mælaspennum í tengivirki, bæði spennuspennum og straumspennum.
  • Ákvarða aðgerðaröð fyrir rofahreyfingar við rof og innsetningu rekstrareininga í raforkukerfinu.
  • Vinna samkvæmt öryggisreglunum fimm.
  • Teikna einlínumynd af einfaldri dreifistöð í innanbæjarkerfi.
  • Lesa einlínumynd af einföldu lágspennudreifikerfi með götuskápum og heimtaugum í innanbæjarkerfi.
  • Teikna tengimynd af jarðstrengsheimtaug og ákvarða liti á leiðurum fyrir fasa-, núll- og varnarnúllleiðara.
  • Ákvarða varstærðir fyrir heimtaugar og gildleika þeirra í lágspennudreifikerfum.
  • Gera útreikninga á álagi í ein- og fjölfasakerfum m.a. til að ákvarða spennu, álagsstrauma o.fl.