RLTK2RK04 - Raflagnateikning 1

Áfangalýsing:

Nemendur öðlast hæfni í að lesa, túlka og búa til einfaldar raflagnateikningar fyrir íbúðarhúsnæði.
Unnið er með viðeigandi staðla og reglugerðir ásamt því að teikna handvirkt með skapalóni fyrir raflagnatákn, í samræmi við fyrirkomulag sveinsprófs.
Nemendur kynnast öryggisreglum, inntakslögnum, greinateikningum, táknum og uppsetningu einlínumynda fyrir rafmagnstöflur.
Lögð er áhersla á nákvæmni, fagleg vinnubrögð og notkun helstu staðla við hönnun og framsetningu raflagna.

Forkröfur: 

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu teiknitáknum og notkun þeirra við hönnun raflagna
  • uppbyggingu og tilgangi einlínumynda og greinateikninga
  • staðli og helstu ákvæðum ÍST 150, ÍST 151 og ÍST 200
  • reglum um öryggi, spennujöfnun og frágang við raflagnahönnun
  • efnistöku og samantekt efnislista út frá teikningu

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • handteikna raflagnateikningar með skapalónum og réttri táknnotkun
  • túlka og lesa teikningar með áherslu á greinar, tákn og lagnaleiðir
  • vinna sjálfstætt að hönnun raflagna í fjölbreyttum rýmum
  • skrá efni og setja fram efnislista með tilliti til magnmælingar og frágangs
  • setja fram skýringartexta með teikningum samkvæmt viðteknum reglum

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna sjálfstætt og af nákvæmni að raflagnateikningu í íbúðarhúsnæði
  • beita faglegu verklagi og fylgja öryggisreglum við vinnu
  • sýna ábyrgð, verklag og skipulag í vinnu við teikningu og efnistöku